Ég fékk mér pylsu með baconi og rækjusalati á select.

Ég var semsagt í heimsókn á íslandi um daginn og fór á select og fékk mér pylsu með baconi og rækjusalati. Þar voru nokkrir og þar voru teknar myndir(örryggismyndavélar útum allt) og ég ræddi við mannskapin (4 fulla karla um fimmtugt.). Ég reyndar hélt ekki á neinum börnum enda með báðar hendur fullar. Það vantar líka alveg sætapláss á select.

mbl.is Obama fékk sér chilipylsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sökkva dallinum og Watson með

Ef að íslensk yfirvöld gera ekki neitt að þá legg ég til að við sökkvum honum sjálf!!!!

 

Niður með Paul Watson!!! 


mbl.is Við erum tilbúnir til að hætta lífinu til að stöðva hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur með minnimáttakennd.

Ég var að lesa bloggið hjá Sóley Tómas og datt þar inná kommentin hjá henni þar sem að karlmenn eru að tjá sig í stórum stíl og einnig konur með brjálæðislega minnimáttarkennd yfir því að vera konur.
Tökum 1 dæmi.
Sóley skrifar: "Konum fækkar á þingi - 20 konur og 43 karlar, sem er lægsta hlutfall kvenna á Norðurlöndunum.

Nú er spennan í hámarki, enda alls óvíst hvaða fólk mun stjórna landinu næstu 4 árin. Bendi af því tilefni á nýja skoðanakönnun hér til hliðar."

Guðmundur Björn svarar: "Hérna.....eiga konur bara að vera á þingi vegna þess að þær eru konur?  Er þetta ekki rangur hugsunarháttur? Er það einfaldlega ekki val kvenna um vilja gerast þingkonur eður ei? 

Er þetta kynjahlutfallskjaftæði ekki að fara út í öfgar!?"

Guðmundur Steinbach svarar líka: "Gott að hafa þetta á hreinu.
Ég fylgist ekki svo með kynjahlutföllum á þingi og hvernig það breytist yfir árin.

Ég kýs nefnilega eftir því hvað fólk er með á milli eyrnana en ekki hvað það er með á milli lappana. Smile

Flestir þeir sem komust á þing núna eru að mínu mati vel til þess hæfir, jafnt konur sem karlar."

Síðan kemur alveg það allra besta.
Ég var við þetta er feministi með minnimáttarkennd sem að les allt sem hatur í garð hennar sem konu.
Þóra Guðmunds. skrifar: "Guðmundur Björn og Guðmundur Steinbach, eru þið virkilega að halda því fram að konur séu eitthvað lakari en karlar til þingstarfa og séu af þeim sökum færri ?"

Bíddu nú aðeins róleg vinan hvaðan kom þetta? Það eina sem að þeir sögðu var að það skipti þá ekki máli hvort að það væru fleiri karlmenn en konur á þingi. Það sem að skiptir máli er að fólk sé lýðræðislega kosið og maður treysti aðilanum sem að maður kýs.


Kosningar 2007

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 62.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 18.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 61%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Sjálfstæðisflokksins!

 

                                                    

 

Skemmtilegt próf en ég get samt ekki treyst því alveg 100%. En ég ætla samt sem áður að kjósa sjálfstæðisflokkinn. Ég hef svona verið að kynna mér alla flokkana og ég sé það að mínar skoðanir passa best við sjálfstæðisflokkinn.

 En það eru kosningar á laugardaginn og munum að kjósa og kjósum rétt.


Oddur Eysteinn Friðriksson GUÐLASTARI!!!!

Verða Oddur og spaugstofumenn saman í klefa? eða ætli það sé til eitthvað sér fangelsi fyrir svona stórglæpamenn? Spurning hvort að við sendum þá til Guantanamo Bay.


mbl.is „Fáránlegt“ að úrslitakvöld Fyndnasta manns Íslands sé á föstudeginum langa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegir síðustu dagar.

Síðustu dagar hafa verið mjög áhugaverðir í lífi mínu ef litið er til þess að ég kemst ekkert út vegna graftarkýli við buxnastrenginn og get mig lítið hreyft sökum þess. Gaman að vera heima og þurfa að hringja í vinnunna og segja "Ég er með graftarkýli og kemst ekki í vinnuna." WHAT? ertu með hvað? já okey frábært.

En fyrst að þið eruð svona hress með þessi graftarkýli að þá heyrði ég góða sögu sem að einhver sagði mér. Ég man reyndar ekki hver þetta var sem að sagði mér þetta enda skiptir það kannski ekki öllu. Allavegana að þá var þetta ungur herramaður sem að við skulum kalla Stefán. Stefán var semsagt farinn að finna til verkja rétt fyrir ofan rassinn á sér eða svona við endann á skorunni og þetta var eiginlega orðið þannig að Stefán gat ekki setið. Stefán ákvað þessvegna að láta konuna sína kíkja á þetta og þá var þetta stórt og mikið kýli sem að var fullt af einhverjum gröfti og drasli. Stefán lét hana því rúnta með sig uppá slysó og þar tók á móti honum læknir sem að kíkti á þetta og sagði svo "Já það þarf að skera. Er þér sama þótt að það geri það 2 læknanemar" Stefáni gat eiginlega ekki verið meira sama.
Inn kom stelpa og strákur sem að stóðu þarna við dyrnar og horfðu á Stefán liggjandi á maganum á borðinu með buxurnar hálfar niður á rass og eitthvað stórt og ógeðslegt kýli uppúr mjóbakinu. Þau heilsast og eru svona hálf feimin hvort við annað. Augljóslega að hittast í fyrsta skipti. Stelpan spyr svo strákinn hvort að hann vilji skera eða hvort hún eigi að gera það. Strákurinn ákveður síðan að skera.
Allt í einu finnur Stefán hvernig allur þrýstingurinn fer úr mjóbakinu og hann liggur þarna í sæluvímu. Læknanemarnir kannski ekki alveg jafn hressir og standa við hurðina á stofunni og horfa á Stefán eins og eitthvað hræðilegt hafi komið útúr þessu, slopparnir sem að voru einu sinni hvítir eru núna blóðugir og gröftur útum allt. Blaðran semsagt sprakk við fyrsta skurð og uppúr þessu gaus þessi þvílíka fýla. Þessi lykt á víst að vera svo hræðilegasta sem að fyrir finnst í læknaheiminum, rotnandi lík komast ekki með tærnar þar sem að þessi hefur hælana. Þetta endaði víst þannig að strákurinn fór fram til þess að æla og stelpan harkaði þetta víst af sér skolaði sárið og hreinsaði bakið á Stefáni og gekk frá þessu.

Þetta er svona það sem að við köllum ömurleg fyrsta vakt hjá læknanema. Ég held að ég hafi aldrei klárað að segja neinum þessa sögu án þess að grenja úr hlátri þegar að komið er fyrir miðju á henni. 


Danaveldi í haust.

Já það verður sko farið til Danaveldis í haust það er sko alveg á hreinu. Það er fátt sem að kemst að þessa dagana en för mín til Danaveldis. En svona fyrir ykkur hin sem að langar að telja niður en ég reikna með því að það verði mikið grátið þegar að hinn mikli maður ég flyt úr landi og gef skít í þessa litlu eyju sem að við erum á. Það verður einmitt þarna í lok ágúst. Ég er bara ekki búinn að ákveða nákvæmlega hvaða dag.

Ég hef oft tekið ákvarðanir í lífinu um eitthvað og stefnt að því lengi. En einhvern veginn að þá hlakkar mig alveg óendanlega mikið til þess að setja upp í flugvél og fljúga til Danmerkur. Danska ríkisstjórnin hringdi einmitt í mig áðann og spurði hvort að ég vildi heitan eða kaldan mat á fréttamannafundinum, kræst eins og mér sé ekki sama geta þessir menn ekki ákveðið neitt sjálfir. Kim Larsen hringdi líka í mig um daginn og sagðist endilega vilja hitta mig og ræða um nýju plötuna sína, hjálpi mér allir heilagir heldur hann að ég hafi bara ekkert að gera þarna úti. Ég veit nú samt ekki hvaða rosa læti eru útaf þessu ég var svona eiginlega búinn að biðja um að þetta yrði bara frekar rólegt sko.

En annars er ég oftar orðinn "veikur" eða sko ég fékk eitthvað graftarkýli þar sem að buxnastrengurinn er. Þetta var orðið þannig að ég gat varla labbað. Mjög skemmtilegt. Ég skrapp til doksa í gær og bað hann vinsamlegast að redda þessu því að þetta væri gjörsamlega að myrða mig. Hann bara eitthvað sallarólegur "já ég þarf að skera í þetta". NEI skera vó rólegur hey hérna relax. Hann semsagt skar á draslið og varð svo að leyfa mér að sjá gröftin og ógeðið koma úr þessu. GAUR reddaðu þessu bara í burtu þetta er ógeðslegt. Núna semsagt er ég með eitthvað drasl yfir þessu og má ekki fara í vinnunna fyrr en kannski á morgun útaf einhverju. Ég nenni ekki að hanga heima aftur í viku. HALLÓ!! ég hef nú alveg eitthvað að gera annað en það.

Það er samt úrslitakeppnin í Iceland express deildinni eru núna. Það er spurning hvort að maður fari á einhvern leik til að taka myndir. 


Lífið er yndislegt.

Já lífið er yndislegt ég losaði mig við gömlu myndavélina mína og fékk mér nýja vél. Hreint út sagt mögnuð vél. Ég hef getað notað hana alveg heilt fimmtudagskvöld. En ég vaknaði á föstudagsmorgun veikari en andskotinn illa talandi með óráði, magaverk, hausverk og gott partý. Ég er alveg soldið búinn að vera slappur síðustu mánuði en þetta toppar allt sko. Mér líður eins og skít akkúrat núna.

En hvað sem að því líður að þá var ég að komast að því hvað ég get ekki hangið heima hjá mér of lengi. Ég kann þetta svo engan veginn. Ég er með tölvuna og sjónvarpið og það er takmarkað hversu lengi ég nenni að hanga á netinu og horfa á sjónvarpið. Eins og núna er ég svangur en samt ekki eða ég gæti sko alveg étið heilan fíl en sökum veikinda þá get ég ekki étið neitt. DO YOU KNOW HOW THAT FEEL????

En allavegana að þá er póker heima hjá Jóni Inga núna sem að ég ætlaði að taka þátt í en NEI!!!

Jæja ég held að ég sé búinn að væla nógu mikið yfir veikindum mínum á þessu bloggi! 


Skemmtileg grein á www.landpostur.is

"Mikil umræða hefur verið undanfarið bæði í fjölmiðlum og á milli manna um aukna fjárhættuspilum, t.d. póker ofl., hér á landi. Mig langaði að kynna mér þessa nýju "íþrótt" sem svo margir eru farnir að stunda reglulega en íslensk lög segja að sé bannað að stunda, eða hvað?"

Ég hef sjálfur spáð í þessu í nokkurn tíma. Ef spilaður er texas holdem póker sem að er sá póker sem að atvinnumenn spila að þá er þetta ekki svo frábrugðið öðrum íþróttum þar sem að lagt er fé í upphafi og hluti fer til mótshaldara og hluti fer í verðlaun.
Ég tók þátt í poolmótum hér áður fyrr þar sem að maður borgaði 2000 kall inn 500 kall fyrir þáttöku og 1500 kall í pottinn. Sigurvegarinn tók síðan pottinn. Er það fjárhættuspil? Ég hef spurt margt fólk um þetta og það gerist nú alveg að í golfmótum að menn borga sig inní mótið og hluti fer til mótshaldara og hluti fer í vinningspottinn. Ég vona að þið séuð að sjá það sem að ég er að reyna að ná fram með þessu.

En svona til þess að útskýra aðeins keppnisfyrirkomulagið í texas holdem að þá koma saman 2-margir einstaklingar saman og allir borga sig inní mótið. Hver og einn spilari fær síðan spilapeninga sem að eru andvirði annað hvort mótsgjaldsins eða bara feik upphæð. Síðan er spilað þangað til að einn stendur eftir með alla spilapeningana. Sjóðurinn skiptist síðan á milli efstu sætana.

En ef að ég myndi spila póker aðeins öðruvísi semsagt þú borgar þig inn og sigurvegarinn fær t.d. kassa af bjór í verðlaun. Er þetta þá ekki fjárhættuspil?

Ég væri til í að fá lagalega útskýringu á því hvað má í þessum málum og hvað má ekki.


Komin í ruglið

Hvert er þetta land eiginlega að fara? Stjórnmálamenn þessa lands rífast eins og litlir krakkar í sandkassa yfir hver fær að hafa gulu stóru fötuna með rauða handfanginu. Sóley Tómasdóttir farin að gráta út í horni með litlu bleiku fötuna öskrandi á Guðmund Steingríms um að hann sé ekki fyndinn, Björn Ingi með 2 bláar fötur í hinu horninu að ulla á Sóleyju, Steingrímur J með lögguhúfu og þykjast vera að stjórna skoðunum fólks með ljósum og flauti, Guðmundur Steingríms fékk sekt, Siv að hóta að hætta að vera kærastan hans Sigga Kára sem að verður reiður og segir að pabbi hans sé sterkari en pabbi hennar, Jónína Bjartmars að reyna að róa Sigga Kára niður "hún var bara að grínast", Egill Silfurbloggari gerir sér mat úr öllu og fær alla til að koma í sjónvarpið svo að við hin getum séð hvurslags rugl er í gangi í pólitíkinni í dag. En svo kemur Ómar Ragnars og syngur fyrir okkur að í leikskóla sé gaman.

Þetta var svona sandkassasápuópera myndu flestir halda en nei það er ekki svo. Þetta er blákaldur raunveruleikinn, svona eru stjórnmálin í dag. Litlir krakkar í sandkassaleik.
Fyrir rúmum 4 árum síðan gekk ég í sjálfstæðisflokkinn grunlaus lítill strákur á fríu fylleríi í boði ungra sjálfstæðismanna. Ég man að ég vann sitt hvað fyrir flokkinn en af því að pabbi minn er ekki með milljón á mánuði að þá hættu þeir að bjóða mér í partýin. Ég veit ekki hvaða flokk maður á að styðja í dag.
Sjálfstæðisflokkinn sem að virðist ætla að verða góður vinstri flokkur, en á morgun er hann hægri flokkur og síðan kannski í næstu viku verður hann á miðjunni. Ég veit ekki alveg hvað maður á að gera.
Framsókn kannski, flokkinn sem að hefði getað gert mjög svo taktíska og góðu breytingu hjá sér og kosið ungt fólk í stjórn flokksins en í staðinn tóku þeir einhvern brjálaðan sveitamann sem að enginn vissi hver var og gerðu hann að formanni. Flokkur sem að tekur alltaf kippi rétt fyrir kosningar og ætlar sko að vera hipp og kúl. Ég man bara eftir mislukkaðri kosningabaráttu Björns Inga þar sem að hann hélt partý með fullt af fríu búsi og hellti síðan ungafólkið fullt og gargaði loforðum yfir lýðinn. "Bjór í tíma í háskólanum" "Tekílaskot í alla tíma í menntaskólum"
Samfylkingin, dont get me started. Þetta er svona eins og vinurinn sem að enginn vill vera vinur. Það meika hann flestir en eftir að hann er búinn að tala í hringi 17 sinnum að þá hætta allir að hlusta á hann. Ég er orðinn þreyttur ruglinu í þessum flokk sem að veit varla fyrir hvað hann stendur.
Frjálslyndaflokkinn sem að stingur flokksystur sínar í bakið. Þarf ég að segja meira?
Vinstri grænir ég segi eins og Siggi Kári þessi flokkur er bara svo djöfulli vinstra megin að ég gæti ómögulega stutt þá.

Ég veit ekki hvað ég ætla að kjósa í vor en um leið og kosningaskrifstofur flokkana opna að þá mun ég labba á milli og sjá hvar skoðanir mínar munu komast best fram. Ég veit allavegana eins og staðan er í dag að þá eru allir flokkarnir úti í sandkassanum að skíta.

Bara svona til gaman má segja það að ég var að reyna að vera fyndinn.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband